Friday, February 3

KertaArinn

...nýjasta djásnið mitt er sem sagt æðislegur kertaarinn sem frændi minn var svo yndislegur að smíða fyrir mig, búið að vera draumur minn í soldinn tíma að eignast eitt svona stykki, og loksins er hann kominn á sinn stað :)

Arininn kominn í hús...


Búið að grunna en ég málaði hann svo gráann áður en ég setti hvíta kalkmálingu yfir...


...þá er gripurinn tilbúinn og búið að koma honum fyrir á réttann stað...


...og plummar hann sig bara vel hliðiná fallegu bjöllu séríunni sem hún móðir mín var svo elskuleg að gera fyrir mig...


...og auðvita fékk bestasta og elskulegast amma mín heiðursess á hillunni...


...ein svona kósý en verð nú að viðurkenna að ég væri sko alveg til í að eiga flotta og góða myndavél sem tæki betri myndir, en hvað um það ég er allavega hæst ánægð með fallega arininn minn!


1 comment:

  1. Ótrúlega flottur arin, verð að fara fá Ívar til að gera einn fyrir mig líka :)

    ReplyDelete