Sunday, September 23

Herbergið hjá prinsinum - Fyrir...

...svo ég haldi nú áfram með herbergið hjá prinsinum þá ætla ég að koma hérna með nokkrar fyrir myndir af herberginu eins og það var áður en ég byrjaði að breyta til s.s. myndir frá því að sveitaþemað var hjá honum, en ég er búin að vera að breyta herberginu bara svona smátt og smátt í soldinn tíma, verið að kaupa inn hluti og skipta út litum en svo loksins um daginn var ráðist á aðalbreytingarnar ( rífa niður parket á veggnum og mála ) en ég er ekki ennþá búin að mynda herbergið alveg bak og fyrir og sá stutti farinn að sofa þannig þið fáið fyrir myndir núna svo kemur breytingin seinna :)

...nokkrar hérna þegar sá stutti var ennþá í rimlarúmi...

...
...

 ...sá stutti að leika sér í herberginu sínu...


...Svo eftir að pjakkurinn var kominn í stærra rúm...
 

... verðið að afsaka jóladótið en myndirnar voru teknar í kringum jólin ...


...parketið á veggnum var rúmgaflinn okkar og það pirraði mig alltaf hvað það var leiðinlegt að raða inn hjá honum með þetta parket, en hann er sem sagt í hjónasvítunni þar sem barnaherbergi var bara of lítið því við erum líka með svefnsófa inni hjá honum sem ég tými ekki að losa mig við því fjölskyldan mín býr útá landi og tengdamamma fyrir austan fjall og ég get ekki hugsað mér að fjölskyldan mín gisti annarstaðar en hjá okkur þegar þau eru í bænum :)

...
...
...

... púðar sem ég prjónaði fyrir prinsinn en þið getið lesið meira um þá hér...

 
... ég var orðin frekar þreytt á öllum skæru litunum og skort á geymsluplássi fyrir dótið og vildi því skapa róandi og notarlegt umhverfi með betra skipulagi og meira geymslupláss fyrir allt dótið sem pjakkurinn á :) Kem svo með myndir af "nýja" herberginu við fyrsta tækifæri :)

Saturday, September 22

Smá búðarráp...

...já ég stökk í bæinn í gær í smá búðarráp og keypti mér nokkrar gersemar :)


Er alveg ástfangin af fallegum efnum þessa dagana og það verður nóg hjá mér að gera um helgina við hin ýmsu verkefni :)

Wednesday, September 19

Brotabrot...

...úr herbergi litla mannsins, en það er allt að smella saman í herberginu hans, búið að mála, hengja upp hillur, myndir og raða svona flestu upp. Aðal höfuðverkurinn þessa dagana er að finna gardínur inní herbergið en það kemur með kalda vatninu ;) Hér er smá brot af því hvernig herbergið lítur út...

...
...
...
...
...
...

Vill einhver sjá meira?

Wednesday, September 12

Kósýness...

...þetta veður kallar bara á það að hafa það notarlegt inn undir teppi með kertaljós og kannski prjónana í höndunum...

...þennan bakka keypti ég fyrir vestan í sumar og allt sem á honum er, elska að versla þegar ég er heima fyrir vestan og það er alltaf einhvað sem fær að fljóta með suður í töskunni...


...ég stenslaði á litla hjartað...

...og maður á aldrei of mikið af litlum kertastjökum...

...ummm hitinn og notarlegheitin sem kemur frá kertum...

Hvað með ykkur, eruði mikið fyrir kerti?
Hérna er þeim allavega farið að fjölga svoldið eftir því sem kólnar úti :)

Monday, September 10

Smá innsýn...

...í það sem er að gerast á heimilinu þessa dagana, en það er sko allt búið að vera á hvolfi hérna sem gerist svo oft þegar einhverjar framkvæmdir eru á heimilinu...

 ...verið að rífa niður parketið sem var á veggnum...

...búið að sparsla...

...einn veggur málaður í lit...

...og restin máluð hvít...


Kem svo með fleiri myndir þegar herbergið er tilbúið ;)

Saturday, September 1

Afmæliskaka...

Já í byrjun ágúst varð litli prinsinn 3ja ára og þar sem við eyðum sumarfríinu okkar alltaf fyrir vestan þá er það orðið árlegt að halda uppá afmælið þar :) Sonur systir minnar á svo afmæli í enda júlí þannig við erum farnar að slá þessu saman í eina veislu sem er mjög þæginlegt :) Það þurfti því að finna þema fyrir einn 1 árs og svo einn 3ja ára og þegar maður er orðinn 3ja þá veit maður alveg hvað maður vill! Sá stóri vildi sko fá gröfuköku og það var farið á netið að leita af hugmyndum, mátti ekki vera of flókið þar sem tíminn var af skornum skammti ( það var verslunarmannahelgi og við vorum á ættarmóti daginn áður ), sonurinn vildi samt ekki eitthvað slor en að lokum komumst við að samkomulagi um hvernig kakan ætti að vera og ekkert of flókin VEIII! En svo var það 1 árs pjakkurinn, hann varð líka að fá sína köku og þar sem hann er nú ekki farin að tjá sig mikið þá ákvað ég bara að gera sveitaþema fyrir hann enda er verið að gera herbergið hans upp og sveitaþema varð fyrir valinu :)

Ég ákvað svo að skella þessu saman í eina stóra köku í stað þess að gera 2 minni kökur...


...sem sagt mjög auðveld kaka, bara skella í eina skúffuköku, krem og svo skreyta smá, gæti ekki verið auðveldara! Gröfuþema fyrir þennan eldri...


...og sveitaþema fyrir þann yngri...


...þar sem kallinn kom vestur til að eyða síðustu frídögunum með okkur þá fékk hann það hlutverk að koma með allt smádótið sem var notað til að skreyta kökuna...


...svo er bara að láta ýmindunaraflið ráða...


...Djúpur notaðar sem heyrúllur...


...læt fylgja með 2 myndir af veisluborðinu...


...svo ein af mér með afmælisprinsana...


...Strákarnir voru yfirsig hrifnir af afmæliskökunni :)